Frétt - MBL
Einungis 2,2 milljónir í útborgun
„Við heyrum það aftur og aftur að ungt fólk telji sig ekki eiga möguleika á að komast inn á fasteignamarkaðinn,“ segja Jónas Halldórsson forstjóri Stofnhúsa og Jónas Páll Viðarsson framkvæmdastjóri Stofnhúsa. „En staðreyndin er sú að með réttri nálgun og hagkvæmum íbúðum er það vel gerlegt og í Þorlákshöfn þarf útborgunin aðeins að vera um 2,2 milljónir króna með hlutdeildarláni.“
Í Hnjúkamóum 16 í Þorlákshöfn er Stofnhús búið að byggja glæsilegt fjölbýlishús með nýjum og fullbúnum íbúðum sem hannaðar eru með hagkvæmni og einfaldleika í huga. Verkefnið er liður í þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað á svæðinu undanfarin ár, uppbyggingu sem hefur gjörbreytt ásýnd bæjarins og aukið aðdráttarafl hans fyrir ungt fólk og fjölskyldur.
Guðmundur Hallgrímsson, fasteignasali hjá Lind fasteignasölu, tekur undir að Þorlákshöfn sé orðinn vinsæll áfangastaður fyrir ungar fjölskyldur. „Uppbyggingin í Þorlákshöfn er ekki aðeins í fasteignum heldur einnig í atvinnulífi og annarri þjónustu sem dregur fólk að. Ekki skemmir fyrir að fasteignaverð þar er almennt lægra en í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum, þótt ekki sé langt að fara.“
Metnaður og fagmennska í fyrirrúmi
Stofnhús er byggingarfélag sem hefur á undanförnum árum byggt upp orðspor fyrir vönduð og hagkvæm íbúðaverkefni. Að sögn Jónasar leggur Stofnhús ríka áherslu á að sameina skynsamlega hönnun, trausta byggingartækni og raunhæfa verðlagningu.
„Við förum ekki í neinar málamiðlanir þegar kemur að gæðum en við hugsum jafnframt um að halda kostnaði í skefjum svo íbúðirnar séu raunhæfur kostur fyrir kaupendur. Eins leggjum við áherslu á gott skipulag, skýra verkstjórn og vandað efnisval en með því næst bæði betri nýting rýmis og endingargóðar lausnir sem standast tímans tönn. Hagkvæmni snýst ekki um að spara á röngum stöðum heldur um að hanna og byggja skynsamlega frá grunni.“
Þá segir Jónas að Stofnhús hafi löngum lagt áherslu á gott orðspor. „Við veitum góða þjónustu og eftirfylgni. Oft er fólk að leggja aleiguna í íbúð og við viljum ekki bregðast þeim. Hjá okkur er fólk því ekki bara að kaupa íbúð heldur líka að kaupa góða upplifun, sem er byggð á traustu orðspori.“
Raunhæfur kostur fyrir fyrstu kaupendur
„Við leggjum mikla áherslu á að gera fólki kleift að stíga fyrsta skrefið,“ segir Jónas. „Það sem skiptir mestu máli fyrir marga er útborgunin en þegar hún er komin niður í um 2,2 milljónir króna er draumurinn allt í einu orðinn raunhæfur. Draumurinn um eigið heimili er nær en margir halda og hann gæti verið í Þorlákshöfn. Þetta er því frábært tækifæri fyrir fólk að koma sér inn á markaðinn.“
Fasteignaverð í Þorlákshöfn er almennt lægra en í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum sem þýðir að kaupendur fá meira fyrir peninginn. Fyrir marga sem hafa verið á leigumarkaði árum saman getur verið skynsamlegra að greiða af eigin íbúð en að setja háar fjárhæðir í leigu án þess að byggja upp eigið fé.
Þorlákshöfn hefur verið á mikilli siglingu undanfarin ár. Uppbygging í atvinnulífi og þjónustu hefur styrkt stoðir bæjarins og skapað ný störf. Samhliða því hefur íbúðauppbygging aukist til að mæta vaxandi eftirspurn.
„Hnjúkamói er byggður með metnaði og áherslu á gæði og nútímalegar lausnir en jafnframt á verði sem er samkeppnishæft,“ segir Jónas. „Kaupendur fá því sambærilega vöru og þekkist á höfuðborgarsvæðinu en með meira fyrir peninginn.“
Staðsetningin er einnig stór kostur. Frá Þorlákshöfn er stutt til Reykjavíkur og auðvelt að sækja vinnu þangað en jafnframt er örstutt til Selfoss og Hveragerðis. Fyrir marga er þetta hinn fullkomni millivegur – að búa í rólegra umhverfi en samt í góðu sambandi við stærri þéttbýlisstaði.
„Við finnum sterkt að ungt fólk er farið að horfa út fyrir höfuðborgarsvæðið,“ segir Jónas. „Það sér tækifærin í því að kaupa á hagkvæmara verði og vera samt í þægilegri fjarlægð frá vinnu og þjónustu. Fólk áttar sig oft ekki á því hvað þetta er raunverulega stutt og hér er kraftur, fjölbreytt þjónusta og öflugt samfélag. Það er einmitt það sem laðar ungt fólk að.“
Hægt að flytja inn strax
Húsið við Hnjúkamóa 16 er vandað og íbúðunum er skilað fullbúnum. Það þýðir að innréttingar og gólfefni eru á sínum stað og eldhúsið er útbúið ísskáp, frysti og uppþvottavél. „Við viljum að fólk geti einfaldlega flutt beint inn. Það á ekki að þurfa að leggja út í kostnaðarsamar framkvæmdir eða standa í miklum framkvæmdum eftir afhendingu,“ segir Jónas.
„Þessi nálgun skiptir miklu máli fyrir fyrstu kaupendur sem hafa oft takmarkað fjármagn milli handanna eftir útborgun. Með því að fá íbúðina fullbúna er auðveldara að halda utan um kostnað og skipuleggja fjármálin. Íbúðirnar eru því hannaðar með nútímalegum og praktískum lausnum þar sem rýmið nýtist vel. Áhersla er lögð á björt rými og notagildi en þetta eru allt atriði sem skipta ungt fólk miklu máli í dag.“
Þorlákshöfn í sókn
Að sögn Jónasar snýst ákvörðun um íbúðarkaup ekki eingöngu um núið heldur einnig framtíðina. „Þegar þú kaupir á svæði sem er í vexti og uppbyggingu ertu líka að fjárfesta í framtíðinni. Við teljum að Þorlákshöfn eigi enn eftir að styrkjast frekar á komandi árum.“
Fyrir ungt fólk sem vill byggja upp eigið fé getur það verið lykilatriði að komast snemma inn á markaðinn. Með hagkvæmu kaupverði og lágri útborgun skapast svigrúm til að byggja upp eign á traustum grunni.
„Við viljum brjóta niður þá mýtu að það sé ómögulegt fyrir ungt fólk að kaupa,“ segir Jónas. „Það krefst skipulags og ábyrgðar, en það er hægt, sérstaklega þegar verkefnin eru hönnuð með hagkvæmni að leiðarljósi.“















